Könnun: Telja að viðskiptabannið gegn Rússlandi hafi verið mistök

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps sögu telja að viðskiptabannið gegn Rússlandi hafi verið mistök. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að viðskiptabannið gegn Rússlandi hafi verið mistök?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 86,2%

Nei: 12,8%

Hlutlausir: 1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila