
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að bankahrun á heimsvísu sé yfirvofandi. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að það sé bankahrun á heimsvísu yfirvofandi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 68,5%
Nei 24,3%
Hlutlaus 7,2%
Greidd atkvæði: 401