
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönunn Útvarps Sögu telja efnahagsflóttamenn ekki vera flóttamenn í almennum skilningi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú efnahagsflóttamenn vera flóttamenn í almennum skilningi?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 93,4%
Já 4,5%
Hlutlaus 2,3%
Atkvæði: 512