Könnun: Telja ekki brýna nauðsyn að planta pálmatrjám í Vogahverfi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ekki sé brýn nauðsyn að planta pálmatrjám í Vogahverfi eins og hugmyndir eru uppi um. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaða könnunarinnar var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Er brýn nauðsyn að planta pálmatrjám í Vogahverfi?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 94,5%
Já 4,2%
Hlutlaus 1,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila