
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ekki raunhæft að banna bifreiðar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti árið 2035. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú raunhæft að banna bifreiðar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti árið 2035?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 92,7%
Já 5,8%
Hlutlaus 1,5%
Greidd voru 600 atkvæði