Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að löng seta á þingi geti sljóvgað samvisku manna. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Getur löng seta á Alþingi sljóvgað samvisku manna?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 92,8%
Nei 3,4%
Hlutlaus 3,8%