Könnun: Telja rétt að ríki skjóti niður óþekkta dróna í lofthelgi þeirra

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að rétt væri að ríki skjóti niður óþekkta dróna í lofthelgi þeirra. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú rétt að ríki skjóti niður óþekkta dróna í lofthelgi þeirra?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 80,3%

Nei: 15,8%

Hlutlausir: 3,8%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila