Könnun: Telja vaxtahækkanir ekki draga úr verðbólgu

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að vaxtahækkanir Seðlabankans muni ekki draga úr verðbólgu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í morgun. Niðurstöðurnar voru kynntar í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegið en í þessari könnun var spurt: Telur þú að vaxtalækkanir Seðlabankans dragi úr verðbólgu?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 88,9%
Já 6%
Hlutlaus 5,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila