Könnun: Þingmenn þurfi að uppfylla hæfnisskilyrði til þess að taka sæti á Alþingi

Afgerandi meirihluta þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu finnst að þingmenn þurfi að uppylla hæfnisskilyrði til þess að taka sæti á Alþingi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Finnst þér að þingmenn þurfi að uppylla hæfnisskilyrði til þess að taka sæti á Alþingi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 90%

Nei: 8,5%

Hlutlausir: 1,5%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila