Könnun: Treysta ekki Ríkisútvarpinu til hlutlausrar umfjöllunar um Evrópusambandið

Langflestir þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segjast ekki treysta Ríkisútvarpinu til þess að fjalla á hlutlausan hátt um Evrópusambandið. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Treystir þú Ríkisútvarpinu til þess að fjalla á hlutlausan hátt um Evrópusambandið?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 92,28%

Já: 6,11%

Ekki viss: 1,61%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila