Könnun: Treysta ekki Þórdísi Kolbrúnu til þess að verða formaður Sjálfstæðisflokksins

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu treysta ekki Þórdísi Kolbrúnu til þess að verða formaður Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segist treysta sér til að verða formaður Sjálfstæðisflokksins ef Bjarni hættir. Treystir þú Þórdísi Kolbrúnu til að verða formaður Sjálfstæðisflokksins?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 88,8%

Já: 7,2%

Hlutlaus: 3,9%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila