Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að Vesturlönd eigi ekki að láta Úkraínu að hafa langdrægar eldflaugar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Eiga Vesturlönd að láta Úkraínu hafa langdrægar eldflaugar?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 73,6%
Já: 23,7%
Hlutlausir: 2,7%