Könnun: Vilja að áformum um borgarlínu verði frestað

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að áformum um borgarlínu verði frestað vegna skuldavanda Reykjavíkurborgar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að áformum um borgarlínu verði frestað vegna fjárhagsvanda Reykjavíkurborgar?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 94,4%

Nei 4%

Hlutlaus 1,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila