
Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að bankaskattur verði hækaður til þess að styðja Grindvíkinga vegna afborgana af fasteignalánum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í morgun.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að bankaskatturinn verði hækkaður til að styðja Grindvíkinga vegna afborgana af fasteignalánum? Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 57,9%
Nei: 36,7%
Hlutlaus: 5,4%