Könnun: Vilja að heilbrigðisráðherra gefi skýringar á því hvers vegna þeir sem sagðir eru hafa látist úr Covid hafi ekki verið krufðir

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að heilbrigðisráðherra gefi skýringar á því hvers vegna þeir sem sagðir eru hafa látist úr Covid hafi ekki verið krufðir. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að heilbrigðisráðherra gefi skýringar á því hvers vegna þeir sem sagðir eru hafa látist úr Covid hafi ekki verið krufðir?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 92,3%

Nei: 4,9%

Hlutlausir: 2,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila