Könnun: Vilja að kennslanefnd fari í samstarf við Íslenska erfðagreiningu um kennslagreiningu líkamsleifa

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að kennslanefnd ríkislögreglustjóra sækist eftir samstarfi við Íslenska erfðagreiningu við að bera kennsl á lífsýni og líkamsparta sem finnast á Íslandi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í morgun.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á kennslanefnd ríkislögreglustjóra að sækjast eftir samstarfi við Íslenska erfðagreiningu við að bera kennsl á lífsýni og líkamsparta sem finnast á Íslandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 60,5%

Nei: 27,9%

Hlutlausir: 11,6%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila