
Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að tjónaskrá verði gerð fyrir þá sem misstu allt sitt í hruninu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að gerð verði tjónaskrá fyrir þá sem misstu allt sitt í hruninu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 88,6%
Nei 9,3%
Hlutlaus 2,2%