Könnun: Vilja ekki að lag hljómsveitarinnar Hatara verði framlag Íslands í Eurovision

Mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að lag hljómsveitarinnar Hatara verði framlag Ísland í Eurovision í ár. Þetta kom fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að lag hljómsveitarinnar Hatari verði framlag Íslands í Eurovision í ár?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 77 %
Já 18,8%
Hlutlaus 4,2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila