Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að útvarpsstöðvar byrji að spila jólalög fyrir 1.desember. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi í dag en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að útvarpsstöðvar byrji að spila jólalög fyrir 1.desember?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 68,4%
Já 23,4%
Hlutlaus 8,2%