
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu er andvígur því að haldið verði áfram með Borgarlínuverkefnið. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Vilt þú að haldið verði áfram með Borgarlínuverkefnið?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 94,08%
Já: 3,94%
Hlutlaus: 1,97%
