Gagnrýnir kæruleysi gagnvart Kórónaveirunni

Inga Sæland þingmaður og formaður Flokks fólksins

Viðbrögð hér á landi við Kórónaveirunni eru full kæruleysisleg og menn ættu að taka smithættunni af mun meiri alvarleika en gert er nú. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Ingu Sæland þingmanns og formanns Flokks fólksins í síðdegisútvarpinu í dag en hún var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur.

Inga bendir á að lítið sem ekkert sé vitað um veiruna og þarf af leiðandi sé erfitt að segja hvernig dreifing hennar mun þróast og hvort hún verði skæðari og hverjar smitleiðirnar séu. Einnig var rætt í þættinum við Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni sem greindi frá því hvað vitað sé um veiruna, dreifingu hennar og smitleiðir.

Eins og kunnugt er hefur veiran verið að dreifa sér hratt á síðustu dögum og er nú svo komið að veiran hefur greinst í öllum Evrópulöndum, nú síðast Danmörku.

Hér á landi eru alls 20 einstaklingar í einangrun vegna veirunnar en enginn hefur enn sem komið er greinst með hana hérlendis. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila