Kosningar í Færeyjum eftir átök um lífeyrisaldur og Suðureyjargöng

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Jens Guð bloggara í Síðdegisútvarpinu í dag um alþingiskosningar í Færeyjum og pólitíska ólgu vegna hækkunar lífeyrisaldurs og fjármögnunar Suðureyjarganga. Fram kom að deilur innan ríkisstjórnar hafi leitt til þess að lögmaður Færeyja hafi rofið þing og boðaði til kosninga í því skyni að leita skýrari stuðnings við stefnu sína. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vildu hækka lífeyrisaldur til þess að fjármagna Suðureyjagöng

Jens útskýrði að í febrúar hafi verið lögð fram tillaga um hækkun lífeyrisaldurs úr 67 árum í 69 ár með stigvaxandi breytingum á löngum aðlögunartíma. Rök stjórnvalda voru að tryggja sjálfbærni opinberra fjármála og standa undir kostnaði við Suðureyjargöng, sem eru meðal stærstu innviðaframkvæmda í sögu eyjanna. Með hækkuninni yrði dregið úr útgjöldum til lengri tíma og vinnumarkaðsþátttaka aukin.

Færeyska þjóðin klofin í málinu

Í máli Jens kom fram að málið hafi vakið töluverða andstöðu, bæði í samfélaginu og innan stjórnarflokkanna. Sex þingmenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu, þar af 4 úr röðum stjórnarliða. Jens Guð sagði að lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, hefði talið að samstarfsfólk sitt hefði brugðist samkomulagi og að það hefði orðið kveikjan að ákvörðun um að rjúfa þing.

Kosið 24. mars

Kosningar fara fram 24. mars, skömmu fyrir dönsku þingkosningarnar. Úrslitin munu skera úr um hvort kjósendur styðji áframhaldandi uppbyggingu og hækkun lífeyrisaldurs eða hvort andstaðan fái aukið vægi á löggjafarþinginu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila