Kostnaður vegna hælisleitenda mun meiri en 10 milljarðar á ári

Kostnaður vegna komu hælisleitenda hingað til lands er mun meiri en þeir tíu milljarðar sem settir eru í málaflokkinn á ársgrundvelli. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar.

Sigmundur segir að þeir tíu milljarðar sem settir séu í málaflokkinn sé aðeins sá beini kostnaður sem málaflokkurinn útheimti nú árlega og fer vaxandi með samhliða auknum fjölda þess fólks sem hingað leitar. Sigmundur segir að í þeirri tölu sé ekki sá kostnaður sem óbeint hlýst af flæði hælisleitenda hingað til lands. Óbeini kostnaðurinn sé ekki síður mikill.

Sá óbeini kostnaður sem fylgir fjölgun hælisleitenda felist til dæmis í auknum fjárútlátum til annara málaflokka sem snúa að ýmis konar þjónustu, til dæmis heilbrigðisþjónustu, samgönguþjónustu, félagslegri þjónustu, kostnaður vegna aukins álags á skólakerfið, löggæslu og svo mætti lengi telja. Því gefi beini kostnaðurinn sem þegar sé mikill í raun ekki rétta mynd af þeim heildarkostnaði sem hlýst af komu hælilsleitenda hingað til lands.

Sigmundur segist lengi hafa bent á þá tilhneigingu kerfisins við að fela kostnaðinn við málaflokkinn með því að nefna aðeins hinn beina kostnað en sleppa afleiddum kostnaði sem sé ekki síður mikill. Hann bendir á að fyrir nokkrum árum þegar beini kostnaðurinn var mun minni en nú og verið var að koma honum fyrir í fjárlögum hafi menn oft efast um að beini kostnaðurinn væri rétt metinn sem síðar hafi svo komið á daginn að hafi verið rangt metinn og hafi reynst mun hærri og þar af leiðandi hafi óbeini kostnaðurinn einnig verið mun hærri.

Hann segir nauðsynlegt að horft sé til afleidds kostnaðar eins og allra annara ríkisútgjalda því það sé hlutverk þingmanna að forgangsraða og velja í hvað fjármagn nýtist best. Hann bendir á að þegar kostnaður vegna hælisleitenda sé borinn saman við stöðu eldri borgara og öryrkja vakni upp mikil reiði af hálfu sumra sem þykja ekki rétt að bera þetta saman. Sigmundur segir að menn verði að átta sig á að eðlileg og skynsamleg umræða um þessi mál sé algerlega nauðsynleg og þess vegna sé mjög bagalegt að hafa ekki yfirsýn yfir heildarkostnað vegna hælisleitenda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila