Landssamtök íslenskra stúdenta og Samband íslenskra framhaldsskólanema hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þess er krafist að stjórnvöld kanni áhrifin af nýju kerfi þar sem námstíminn var styttur úr fjórum árum í þrjú.
Í yfirlýsingunni segir að brýnt sé að staða þeirra háskólanema sem koma úr hinu nýja kerfi verði skoðuð í samanburði við þá nemendur sem komu úr því fyrra. Úttektin þurfi að taka mið af fjölbreyttum þáttum líkt og líðan stúdenta, gæði náms og undirbúning fyrir háskólanám. Jafnframt sé nauðsynlegt að meta hvort þau markmið sem stjórnvöld settu fram með þessari breytingu hafi verið uppfyllt og hvaða önnur áhrif breytingin hafi haft á íslenskt samfélag, tómstundaþátttöku ungmenna og vinnumarkað.
“Það er í raun ótrúlegt að ekki hafi verið fylgst grannt með áhrifum þess að framhaldsskólinn var styttur og þeim afleiðingum sem styttingin hefur á undirbúning fyrir háskólanám. Það er gífurleg vanræksla á skólakerfinu af hálfu stjórnvalda.” segir í tilkynningunni.