Útvarp Saga hefur áður greint frá lygum stuðningsmanna George Soros á ESB-þinginu sem ásaka Ungverja um antisemítisma vegna gagnrýni Ungverja á George Soros og innflytjendastefnu ESB. Þann 20. mars n.k. greiðir EPP hópurinn atkvæði um að reka Fidesz flokkinn nema að Orbán biðji alla flokka hópsins afsökunar; Ungverjaland hætti tafaralaust með alla gagnrýni á George Soros og ESB og að Ungverjaland veiti háskóla Soros ríkisstyrk og breyti lögum svo Soros-háskólinn geti starfað í Ungverjalandi. Ríkisstjórn Viktor Orbáns sér Soros-háskólann sem fjandsamlegan erlendan háskóla sem reyni að hafa áhrif á stjórnmálin innanlands. Ungversk lög krefjast að háskólar í erlendri eigu hafi minnst eina starfandi deild í móðurlandinu en Soros-háskólinn uppfyllir ekki það skilyrði.
Ekki er búist við að Viktor Orbán gangist við þessum afarkostum. Sjá nánar hér.