Allir sem hafa áhyggjur af því, að aðild Svíþjóðar að Nató muni þýða, að stjórnvöld leyfi Bandaríkjunum að byggja herstöðvar í sænskum sveitarfélögum geta andað rólegar. Ríkisstjórnin ætlar nefnilega ekki að kalla herstöðvarnar fyrir herstöðvar, segir varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Pål Jonson á ráðstefnunni Fólk og varnir, sem staðið hefur yfir í nokkra daga. Fria Tider segir frá:
„Herstöðvarsvæði“ í stað „herstöðvar“
Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, tilkynnti á mánudag að Svíar væru að undirbúa samning við Bandaríkin um að hafa bandaríska hermenn og bandarískan herbúnað í Svíþjóð. Tilkynningin vakti undrun, vegna þess að ríkisstjórnin hafði áður tilkynnt, að hún vildi ekki bandarískar herstöðvar í Svíþjóð.
Varnarmálaráðherrann leggja mikla áherslu á, að ekki sé verið að byggja bandarískar herstöðvar í Svíþjóð, þar sem það sé of umdeilt. Þess í stað mun ríkisstjórnin kalla herstöðvarnar „herstöðvarsvæði Bandaríkjanna.“ Hugtök ríkisstjórnarinnar höfðu hins vegar lítil áhrif á mánudaginn og meira að segja ríkissjónvarpið SVT reyndi ekki að halda því fram, að einhver efnismunur væri á hugtökunum.
Sami blekkingarleikurinn í Noregi
Mats Knutsson fréttaskýrandi SVT segir í greiningu á heimasíðu SVT:
„Svipað fyrirkomulag í Noregi hefur verið gagnrýnt fyrir að vera leið til óbeint að skapa bandarískar herstöðvar, án þess að kalla þær það.“
Að sögn varnarmálaráðherra Svíþjóðar snýst þetta um varnarsamning við Bandaríkin „Defense Cooperation Agreement, DCA“ þar sem Svíar láta Bandaríkin byggja „herstöðvasvæði“ fyrir bandarískt herlið, þar sem bæði her og hernaðartæki stórveldisins geta verið staðsett. Mats Knutsson telur að ekki sé hægt að búast við því að jafnaðarmenn hefji pólitíska baráttu um málið, heldur þvert á móti reynir Peter Hultqvist fv. varnarmálaráðherra sósíaldemókrata að láta það hljóma eins og að hann eigi hugmyndina um „bandarísku herstöðvasvæðin“ í Svíþjóð.