Donald Trump forseti Bandaríkjanna ætlar ekki að láta draga sig inn í deilur tyrkja og kúrda meira en brýn þörf krefur en hann er ekki með því að gefa veiðileyfi á kúrda. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Heimsmálin. fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en þar ræddu Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson við Guðmund Franklín Jónsson, Hauk Hauksson og Gústaf Skúlason.
Guðmundur segir of mikið gert úr þeim aðgerðum Bandaríkjamanna að flytja á brott hermenn
“ þetta eru ekki nema fimmtíu hermenn sem fóru af svæðinu en þarna eru þeir með um þúsund manna herlið svo það er alls ekki verið að gefa neitt skotleyfi á kúrda, heldur þvert á móti þó það hafi verið í fréttum um alla heimspressu„.
Haukur segir að með útspili tyrkja sé kominn upp sérstök staða
“ þetta er ekki klókur leikur því Erdogan er með þessu að ýta kúrdum í lið með rússum og Assad„,segir Haukur.
Hlusta má á ítarlegri greiningu af atburðunum í spilaranum hér að neðan