Læknar hrósa óbólusettum: Eru andlega sterkir með gagnrýna hugsun

(Mynd: Ivan Radic CC 2.0)

Hinn heimsleiðandi hjartalæknir Peter McCullough segir í viðtali (sjá myndband neðar á síðunni), að fólk sem aldrei lét bólusetja sig gegn covid-19 sé „öfundarefni heimsins núna.“ Óbólusettir hafa nefnilega mestu hæfileika til gagnrýninnar hugsunar og eru andlega sterkastir.

Í fyrra voru nánast nornaveiðar á „óbólusettum.“ En margir stóðust álagið og tóku engar sprautur gegn covid-19 sem bandaríski læknirinn Peter McCullough segir vera hetjulega gert. McCullough sagði:

„Ég hef fylgst með fréttum frá Kanada, þar sem lagt var til að fólk sem neitaði bólusetningum ætti að fá meðferð geðsjúkra. Þeir sem neituðu bóluefninu eru þeir sem hafa mestu gagnrýna hugsun, mesta innsýn og sterkasta sinnið og sterkustu líkamana meðal okkar. Þeir eru síðustu einstaklingarnir, sem þarfnast geðlyfja.“

„Hinir óbólusettu koma frábærlega vel út í öllum greiningum. Þeir hafa lægstu dánartíðni burtséð frá orsökum. Þeir eru vel á sig komnir og sterkir. Heimurinn öfundar þá óbólusettu núna.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila