Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur ákveðið að taka Landsréttarmálið svokallaða fyrir hjá dómstólnum. Þetta staðfesti Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður í samtali við Morgunblaðið sem fjallar um málið í vefúgáfu sinni í dag.
Eins og kunnugt er snýst málið um hvernig staðið var að skipan fjögurra dómara í Landsrétt en Vilhjálmur höfðaði mál fyrir hönd skjólstæðings síns þar sem einn dómaranna fjögurra dæmdi í máli skjólstæðings hans sem kærði niðurstöðuna til Mannréttindadómstólsins sem komst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið skipað á réttan hátt í stöðu dómaranna.
Í samtali við mbl segir vilhjálmur að niðurstaðan komi honum ekki á óvart „ Þessi ákvörðun hefur verið tekin og hún er ekki rökstudd sérstaklega. Ég er einfaldlega upplýstur um það að ég verði á næstunni upplýstur um framhaldið. Það er bara staðan. Mér fannst alltaf líklegra en hitt að það yrði fallist á þessa málskotsbeiðni,“ segir Vilhjálmur.