
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. dómsmálaráðherra kom víða við í þættinum Fréttir vikunnar en hann var sérstakur gestur Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra. Ástandið á stjórnarheimilinu eftir ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, fyrr í sumar að stöðva hvalveiðar tímabundið er vægast sagt ekki á toppnum. Töldu sumir að stjórnin myndi springa í kjölfarið en matvælaráðherrann birti greinargerð nýlega, þar sem hvalveiðar eru áfram leyfðar að uppfylltum hertum skilyrðum við veiðarnar.
Jón Gunnarsson taldi niðurstöður matvælaráðherrans ekki koma á óvart en hann telur vinnubrögðin flumburkennd og óvönduð:
„Það hefði verið hægt að koma með þessa niðurstöðu miklu fyrr, þar sem öll atriði málsins lágu fyrir í vor. Það var mikill seinagangur í vinnu ráðuneytisins og fyrst haft samband við hvalveiðifyrirtækið nýlega. Mér sýnist margt af því sem er í reglugerðinni varðandi nýja tækni sé fyllt í af hvalveiðifyrirtækinu sjálfu. Þetta hefði því verið hægt að leysa miklu fyrr.”
Samkomulag milli stjórnarflokkanna að hrófla ekki við hvalveiðum
Jón upplýsti um, að samkomulag hafi ríkt á milli stjórnarflokkannna við myndun ríkisstjórnarinnar um að engin breyting yrði gerð á hvalveiðum Íslendinga. Annað mál sem vekur athygli er að svo virðist sem Svandís Svavarsdóttir vilji telja landsmönnum trú um, að „Ísland sé eina landið í heiminum sem veiði hval.” Röktu þau Jón og Arnþrúður dæmi um lönd sem leyfa hvalveiðar:
- Noregur hátt í 600 dýr árlega
- Kanada 900 dýr árlega
- Grænland 262 dýr árlega
- Japanir allt að 570 dýr árlega
Að auki stunda Færeyingar hvalveiðar. frumbyggjar í Alaska m.fl.
Látum ekki Hollywoodleikara stilla okkur upp við vegginn
Vakið hefur athygli, að frægir Hollywood leikarar hóti að hætta að taka upp kvikmyndir á Íslandi, ef landið hættir ekki hvalveiðum. Fór Jón yfir röð slíkra hótana á ýmsum tímabilum sem allar hafa verið orðin tóm. Til dæmis hafi ferðaskrifstofan Stacy Adamst hætt ferðum til Færeyja vegna hvalveiða þar en þurft að snúa aftur eftir ár, þar sem ferðmenn heimsóttu eyjarnar engu að síður. Á níunda áratugnum sögðu fiskveiðisamtök á Íslandi að fiskimarkaðir Íslands erlendis myndu hrynja vegna hvalveiða en það reyndist ekki rétt. Einnig hafa hvalveiðar ekki haft nein umtalsverð áhrif á ferðafólk til Íslands og finnst sumum þeirra það vera upplifun að fá að snæða kræsingar úr hvalkjöti á íslenskum veitingahúsum. Um kvikmyndafólkið sagði Jón:
„Við búum vel að kvikmyndafólki og endurgreiðum 35% af öllum kostnaði við framleiðslu, flug, þyrluflug leikara að upptökustöðum osfrv. Endurgreiðslan er sótt í vasa skattgreiðenda til að liðka til fyrir kvikmyndatökum en allir eru ekki sáttir við, að ríkið greiði niður þessa grein frekar en aðrar greinar. En það er sú ákvörðun sem gildir núna. Ég heyrði það af aðila, að leikararnir ákveða ekki hvar kvikmyndir eru teknar. Við getum ekki látið Hollywood leikara stilla okkur upp við vegginn, þótt þeir séu ósáttir við hvalveiðar.”
Hlusta má á þáttinn með því að smella á spilarann hér að neðan:
