Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, fullyrðir, að Bandaríkin hafi átt beinan þátt í sprengingunni á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasalti í september, að því er The Sun greinir frá (sjá myndband neðar á síðunni).
Gasleiðslur Nord Stream 1 og 2 í voru sprengdar í loft upp í Eystrasalti í september s.l. Þannig voru orkuinnviðir Evrópu eyðilagðir. Þessi sögulegi og alvarlegi atburður er einhverra hluta vegna horfinn úr fréttameðhöndlun meginmiðla.
Í Svíþjóð héldu „sérfræðingar“ því fram, að „einungis Rússar gætu hagnast á sprengjuárásinni.“ Sú kenning að Rússar hefðu sprengt sína eigin dýru gasleiðslu í loftið var án grundvallar. Rússar hafa áður sakað „Engisaxa“ Breta um hryðjuverkið. Núna benda þeir einnig opinberlega á Bandaríkin.
„Við erum að undirbúa skýrslu um það sem hefur gerst á síðasta ári og hvað okkur hefur tekist að afhjúpa“ segir Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, í viðtali við sjónvarpsþulinn Dmitry Kiselyov. Skýrslan á að koma út á afmælisdegi „sérstakrar hernaðaraðgerðar“ í Úkraínu eins og Rússar kalla það, að sögn Tass.
„Það snýst ekki bara um hernaðarlegar, líffræðilegar rannsóknarstofur Bandaríkjanna sem þeir reyna að neita að þeir hafi eitthvað með að gera. Þeir ljúga eins og þeir gera alltaf. Og þetta snýst ekki heldur bara um beina þátttöku Bandaríkjanna í sprengingunum á Nord Stream gasleiðslunum heldur. Það er margt sem sýnir aðferðirnar sem Bandaríkin nota til að ná yfirráðum.“
Sjá yfirlýsinguna: