Leggur fram 900 milljónir í styrki vegna orkuskipta

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 900 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslags- og orkumála í ár.

Í tilkynningu segir að styrkirnir séu liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og eru styrkflokkar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að styðja við orkuskipti á landsvísu. Áhersla er lögð á vistvæna orkunýtingu, sem og að styðja við orkuskipti í samgöngum um land allt. Styrkirnir sem auglýstir eru nú eru almennir styrkir vegna orkuskipta og verða styrkir vegna þungaflutninga og bílaleigubíla auglýstir innan skamms. 

 „Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum um það hvernig við náum metnaðarfullum markmiðum okkar í loftslagsmálum.  Orkuskiptin eru nauðsynlegur þáttur í þeirri vegferð og þurfa að komast strax til framkvæmda. Það þarf að auka enn frekar slagkraft frumkvöðla í þessum málum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hvetur fólk til þess að kynna sér sjóðinn.

Styrkir til verða veittir til verkefna á eftirfarandi sviðum:

Framleiðsla endurnýjanlegs eldsneytis (raf- eða lífeldsneytis)

·         T.a.m. fyrir siglingar eða flug

Innviðir fyrir orkuskipti

·         Samgöngur á landi 

    o   Hraðhleðslustöðvar  (150kW+) á fjölförnustu (flutnings)leiðum landsins

·         Samgöngur á sjó eða vötnum

    o   Hleðsluinnviðir í höfnum

Tækjabúnaður sem nýtir endurnýjanlega orku í stað olíu

·         T.a.m. í framleiðslu, flutningum eða siglingum

·         Varaafl

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila