Lögfræðingar Hunter Bidens þóttust vera heimildarmyndagerðarmenn
Kvikmyndin Sonur minn Hunter „My Son Hunter“ verður frumsýnd 7. september. Myndin er ævisögulegt drama um líf Hunter Bidens sonar Joe Biden Bandaríkjaforseta. Dreifingaraðili myndarinnar er Breitbart News.
Í nýlegu viðtali afhjúpaði leikstjórinn Robert Davi, að lögfræðingar Hunter Biden hefðu verið að laumast við upptöku myndarinnar í Belgrad, Serbíu (sjá myndband neðar á síðunni):
„Mánuði áður en ég var þar, þá var Hunter í Serbíu í Belgrad, mánuði áður en við byrjuðum að mynda. Einnig sendu þeir hóp lögfræðinga, sem sögðust vera heimildarkvikmyndargerðamenn til að lauma sér inn við upptöku okkar myndar. Síðar komumst við að því, að þeir voru fulltrúar Hunter Biden, sem voru sendir á staðinn. Hvað var Hunter Biden að gera í Serbíu þegar við unnum við kvikmyndatökur í nóvember eða september? Hvað var Hunter að gera í Belgrad í Serbíu í september?“
Sjá má viðtalið við John Davi í tístinu hér að neðan:
Samkvæmt New York Post þá leikur „Dynasty“ leikarinn John James leikur Joe Biden í myndinni:
„Dynasty leikarinn John James hefur verið fenginn til að leika Joe Biden forseta í væntanlegri kvikmynd um líf Hunter Biden í myndinni Sonur minn Hunter.“
„Þetta minnir mig svolítið á „Dynasty“ sagði „Axcellerator“ leikarinn og minntist sjónvarpshlutverks síns. James lék persónuna Jeff Colby sem frægur varð í sjónvarpsþáttum ABC, sem voru í gangi frá 1981 til 1989 einnig í „The Colbys“ frá 1985 til 1987.f
Gina Carano, Laurence Fox og Emma Gojkovic leika einnig í myndinni. Breitbart dreifir kvikmyndinni SONUR MINN HUNTER – sem er snjallasti gaurinn sem Joe Biden þekkir – í leikstjórn Robert Davi. Myndin sýnir okkur það sem FBI bannaði okkur að sjá.
VIÐVÖRUN!
„Þessi kvikmynd inniheldur: Kynlíf, vændi, eiturlyf, spillingu, peningaþvætti, meira kynlíf, fartölvuna frá helvíti, kínverska njósnara, úkraínska „viðskiptavini“, Kínverska kommúnistaflokkinn, útsölu á Bandaríkjunum, stóri manninn, maíspopp, enn meira kynlíf, fíkniefni til viðbótar og …Fjölskylduna.“