
Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri skipar efsta sæti á lista Framsóknar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi er í öðru sæti og Þorvaldur Daníelsson fyrsti varaborgarfulltrúi og framkvæmdastjóri Hjólakrafts í því þriðja.
Halldór Bachmann kynningarstjóri skipar fjórða sæti og Andrea Edda Guðlaugsdóttir hagfræðinemi og stúdentaráðsliði það fimmta.
Boðar stefnubreytingu í borgarmálum
Í tilkynningu flokksins kemur fram að Einar Þorsteinsson segi listann endurspegla breiðan hóp fólks sem vilji breyta áherslum í stjórn Reykjavíkurborgar. Hann kveðst þakklátur fyrir traustið til að leiða listann og segir markmiðið að ná fram róttækum breytingum á stefnu borgarinnar.
1. Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi
2. Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi
3. Þorvaldur Daníelsson, varaborgarfulltrúi og framkvæmdastjóri Hjólakrafts
4. Halldór Bachmann, kynningarstjóri
5. Andrea Edda Guðlaugsdóttir, hagfræðinemi og stúdentaráðsliði
6. Þórdís Jóna Jakobsdóttir, fíkniráðgjafi
7. Ína Holoyad, úkraínskumælandi brúarsmiður hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
8. Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikari
9. Ásrún Kristjánsdóttir, myndlistarmaður og hönnuður
10. Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri
11. Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur
12. Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður Sambands eldri Framsóknarmanna og fyrrum kaupmaður
13. Jón Finnbogason, ráðgjafi
14. Þórdís Arna Bjarkarsdóttir, læknir í sérnámsgrunni
15. Fanný Gunnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og kennari
16. Haraldur Þorvarðarson, kennari og handboltaþjálfari
17. Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir, tæknistjóri
18. Hörður Ragnarsson, hugbúnaðarsérfræðingur
19. Sæþór Már Hinriksson, tónlistarmaður og háskólanemi
20. Ásta Björg Björgvinsdóttir, kennari og tónlistarkona
21. Gísli J. Jónatansson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri
22. Dröfn Skorradóttir, móttökuritari
23. Ágúst Guðjónsson, lögfræðingur
24. Hafsteinn Gunnarsson, byggingafræðingur og forstöðumaður
25. Björg Ósk Gunnarsdóttir, lögfræðingur
26. Björn Ívar Björnsson, fjármálastjóri og hagfræðingur
27. Gyða Björg Olgeirsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
28. Arnar Már Davíðsson, framleiðandi
29. Linda Björk Hávarðardóttir, aðstoðarforstöðukona á frístundaheimili
30. Arnþór Árni Logason, tölvunarfræðingur
31. Bragi Ingólfsson, efnafræðingur
32. Steinþór Ólafur Guðrúnarson, atvinnubílstjóri
33. Olga Hrönn Olgeirsdóttir, deildarstjóri í grunnskóla
34. Breki Halldórsson Bachmann, námsmaður og stuðningsfulltrúi í grunnskóla
35. Inga Þyrí Kjartansdóttir, formaður eldri borgara í Fossvogi
36. Ólafur Ólafsson, sérfræðingur
37. Jóhann Karl Sigurðsson, eldri borgari
38. Ívar Orri Aronsson, íþróttastjóri
39. Milla Ósk Magnúsdóttir, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi
40. Lárus Sigurður Lárusson, söngvari og lögmaður
41. Hulda Finnlaugsdóttir, fyrrverandi sérkennari
42. Aðalsteinn Haukur Sverrisson, framkvæmdastjóri og fráfarandi borgarfulltrúi
43. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við HÍ og fráfarandi borgarfulltrúi
44. Níels Árni Lund, fyrrverandi skrifstofustjóri
45. Hjálmar Árnason, fyrrverandi þingmaður og skólameistari
46. Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og ráðherra
