Hjá Sinai fjalli þar sem Móses fékk boðorðin tíu frá Guði á að kynna „loftslagsboðorðin tíu.“ Verður það gert á svokallaðri „siðabreytingarathöfn“ með fulltrúum margra trúarbragða á meðan loftslagsráðstefnan stendur yfir í Egyptalandi. Myndin sýnir teikningu Julius Schnorr von Carolsfeld þegar Moses kom af Sinai fjalli með boðorðin tíu frá Guði sem hafa verið leiðarljós kristinna manna og gildi allar götur síðan. En núna ætla loftslagssinnar sem sagt skipta út þeim guði sem kristnir menn hafa haft á móti nýjum loftslagsguði og tíu boðorðum hans.
Siðbreytingarathöfn til „loftslagskristinnar trúar“ á vegum COP 27 í næstu viku
Biblían segir frá því, þegar Móses fékk tvær steintöflur frá Guði með tíu boðorðum sem grunngildum lífsins. Þau fjalla m.a. um að tilbiðja ekki aðra guði, heiðra föður og móður, halda hvíldardaginn hátíðlegan, fremja ekki morð eða aðra glæpi o.s.frv. Guð hefur hins vegar engar skoðanir á losun manna á koltvísýringi út í andrúmsloftið, jafnvel þótt háttsettir fulltrúar meðal annars sænsku kirkjunnar, eins og fráfarandi erkibiskup Antje Jackelén, fullyrðir að svo sé.
Kirkjufulltrúar í Svíþjóð og fleiri löndum hafa áður viljað skipta Jesú út sem spámanni kristninnar fyrir Gretu Thunberg. Nú ganga þeir skrefi lengra og vilja skipta út öllum tíu boðorðum Guðs fyrir tíu ný „loftslagsboðorð“ með undirtitlinum „spámannlegt ákall til loftslagsréttlætis“.
Til að gefa þessum nýju boðorðum sömu stöðu og sama vægi og boðorð guðs hafa, þá á að kynna þau á sama hátt og lýst er í Gamla testamentinu, – við hátíðlega athöfn á Sínai fjalli. Ekki hefur enn verið tilkynnt hver mun fara með hlutverk Guðs og Móses við athöfnina.
Jafnvel fylgismenn „Abrahamísku“ trúarbragðanna – gyðingdóms og íslams er velkomið að breyta til hinnar nýju loftslagstrúarbragða. Hversu mikill áhuginn er þaðan er óljóst. Vatíkanið fagnar hins vegar opinskátt loftslagsumbótunum.
Meðal fyrirlesara þegar nýju steintöflurnar verða teknar í notkun loftslagstrúboðsins verður Andreas Holmberg Stokkhólmsbiskup, sem verður fulltrúi Svíþjóðar. Í tengslum við biskupsvígsluna árið 2019 hélt hann því fram, að Guð hefði sagt honum að loftslagið væri mikilvægasta viðfangsefni kristninnar.
Guð hafður að spotti
Hins vegar eru ekki allir kristnir sammála eða jafn ánægðir með ráðstöfunina. Til dæmis segir predikarinn Holger Nilsson í athugasemd til Världen Idag, sem hefur vakið töluverða athygli „að verið sé að hafa Guð að spotti.“
Hann lýsir auknum samruna kristninnar við loftslagssértrúarsöfnuðinn sem „áhyggjuefni en komi ekki á óvart.“ Hann bendir á, að margir sem eru andlega á villigötum og hafa áhyggjur af þeim daglega loftslagsdómsdagsboðskap, sem fjölmiðlar skjóta sem sprengjuregni yfir okkur, gætu hæglega tælst til að játast hinni nýju loftslagskristni.
EFtir árásirnar á Tvíburaturnana í New York og mikinn innflutning múslima og íslamskra trúarbragða til hins vestræna heims fá margir sjálfsagt „öryggistilfinningu“ þegar leiðtogar kristinna og múslima segjast sameinast í nýju bræðralagi loftslagstrúarbragðanna.
En að stroka út tíu boðorð Guðs og skrifa sín eigin segir Nilsson vera „guðslast.“ Hann segir alvöru boðorðin tíu vera góð fyrir alla þá, sem vilja gera eitthvað í loftslagsmálunum. Að búa til nýja trú með nýjum boðorðum líkist helst skurðgoðadýrkun gullkálfsins eins og sumu fólki er lýst, sem féll fyrir því að tilbiðja annan guð, þegar Móses fór að ná í steintöflurnar. Þetta fólk hefur glatað sjálfu sér í góðri meiningu sinni. SD-þingmaðurinn og loftslagssérfræðingurinn Elsa Widding sagði í nýlegri ræðu á sænska þinginu sem hneykslaði marga loftlagstrúboða:
„Það verður að binda enda á loftslagstrúarbrögðin.“
Aðilar loftslagssiðaskiptanna:
Við þurfum nýja einingarmenningu sem skilur að jörðin er hluti af okkur og að við erum hluti af jörðinni.
Adolfo Tito Yllana, Vatíkanið
- Samtök stofnana sem samræma samkomur milli trúarbragða á COP 27
- Þvertrúarmiðstöð fyrir sjálfbæra þróun
- Elijah Interfaith Institute og ráð trúarleiðtoga heimsins í gyðingdómi, íslam, kristni, búddisma og indverskum trúarbrögðum
- Friðarráðuneytið, bandarísk sjálfseignarstofnun
- Loftslagsbaráttumaðurinn Yosef Abramowitz er sérstakur ráðgjafi
- Samstarfsaðili: Umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna Faith for Earth Initiative, sem vinnur með trúarstofnunum til að ná sjálfbærnimarkmiðum og Dagskrá 2030