Lögð áhersla á jákvæð áhrif og lágmörkun umhverfisáhrifa

Sjálfbærni er lykilatriði í nýrri stefnu um þolmörk og móttöku skemmtiferðaskipa í Reykjavík. Stefnan sem gildir til ársins 2030 leggur áherslu á að stuðla að jákvæðum áhrifum skemmtiferðaskipa og að lágmarka neikvæð áhrif þeirra á umhverfi og samfélag. Hún byggir á fjórum sjálfbærnivíddum sem snúa að efnahag, samfélagi, gestum og umhverfi. Skýrsla stýrihóps sem unnið hefur að stefnunni var afgreidd í borgarráði í dag og verður hún tekin til frekari meðferðar hjá forsætisnefnd og borgarstjórn.

Engin fjölgun skipa eða farþega á næstu árum

Ekki er gert ráð fyrir fjölgun skemmtiferðaskipa eða farþega á næstu árum samkvæmt stefnunni. Á árinu 2024 komu 259 skemmtiferðaskip til Faxaflóahafna, sem er sambærilegt við fyrri ár. Fjöldi skipa verður áfram á bilinu 230-260 skip á ári og farþegafjöldi á bilinu 250-320 þúsund. Þó er gert ráð fyrir aukningu í hlutfalli skiptifarþega, þ.e. farþega sem fljúga til og frá landinu og dvelja í Reykjavík fyrir eða eftir skemmtiferðaskip sitt, þar sem þeir skilja eftir sig meiri verðmæti en hefðbundnir skipafarþegar.

Skemmtiferðaskip skapa umtalsverðan fjárhagslegan ávinning

Samkvæmt skýrslunni er efnahagslegt umfang skemmtiferðaskipa umtalsvert. Árið 2023 námu efnahagsleg áhrif þeirra 37,2 milljörðum króna og tekjur íslenskra hafna af komum skipanna voru 3,4 milljarðar. Heildarneysla farþega er metin á 22-30 milljarða og skiptifarþegar eyða um 2,8 sinnum meira en aðrir farþegar. Í skýrslunni er lagt til að byggð verði ný fjölnota farþegamiðstöð við Skarfabakka sem getur tekið á móti 3500 til 4000 farþegum á dag og bætt þannig móttöku farþega í Reykjavík.

Aðgerðir til að draga úr mengun

Eitt af meginmarkmiðum stefnunnar er að lágmarka umhverfisáhrif skemmtiferðaskipa. Vöktun Umhverfisstofnunar á loftgæðum sýnir að mengunarstyrkur við Skarfabakka er undir skilgreindum viðmiðunarmörkum. Margt hefur áunnist undanfarin ár hjá skipaútgerðum í umhverfismálum, til dæmis með notkun lofthreinsikerfa sem minnka losun brennisteinstvíoxíðs um 98%, notkun sólarrafhlaðna og síunar á útblæstri til að draga úr sótmengun.

Faxaflóahafnir innleiddu árið 2023 umhverfiseinkunnarkerfið Environmental Port Index (EPI), sem veitir afslátt eða leggur álag á hafnargjöld eftir umhverfishegðun skipa. Faxaflóahafnir eru einnig meðal fyrstu hafna í heiminum sem geta tengt skemmtiferðaskip við rafmagn í landi, sem dregur enn frekar úr útblæstri og mengun.

Ábendingar um þolmarkagreiningu og viðbragðsáætlanir

Í skýrslunni eru lagðar fram ábendingar um frekari rannsóknir á áhrifum fjölda ferðamanna á samfélag og innviði. Meðal annars er mælst til þess að gerð verði þolmarkagreining fyrir landið í heild og að stjórnvöld setji skýrari viðbragðsáætlanir vegna skemmtiferðaskipa. Þá er lögð áhersla á að fylgst verði með reglum um starfsumhverfi skipafólks og áhrif móttöku skemmtiferðaskipa á skattspor og efnahag verði rýnd frekar.

Hafnarstjóri Faxaflóahafna fagnar stefnunni og segir hana samræmast markmiðum hafnanna um betri loftgæði og bætta þjónustu. Formaður stýrihópsins segir stefnuna bregðast við áhyggjum almennings með skýrari viðmiðum um fjölda skipa, minni mengun og aukna sjálfbærni. Hún leggur einnig áherslu á að álagsstýring ferðamanna verði skoðuð í samhengi við fjölda ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu og helstu áfangastöðum á suðvesturhorninu.

Tillaga borgarritara og skýrsla stýrihópsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila