Fjárframlög til löggæslumála eru langt frá því að vera ásættanleg og rétt væri að fjárframlögin væru í takti við þá samfélagsþróun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Snorra Magnússonar formanns Landsambands lögreglumanna í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag.
Snorri segir að ófullnægjandi fjárframlög geti komið niður á þjónustu við hinn almenna borgara þó lögreglumenn séu allir að vilja gerðir til þess að taka á þeim málum sem þarf að sinna
“ þetta veldur því meðal annars að minni háttar innbrotamál séu látin mæta afgangi og brýnari verkefni látin ganga fyrir og þetta er auðvitað ekki ásættanlegt, þetta má rekja mikið til vegna niðurskurðar, það segir sig sjálft að það gengur ekki upp þegar fólki hefur fjölgað, ferðamönnum hefur fjölgað og svo framvegis að skera niður„,segir Snorri.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan