Lögregla rannsakar andlát karlmanns í heimahúsi í Kópavogi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst á ellefta tímanum í gærmorgun tilkynning um meðvitundarlausan karlmann í heimahúsi í Kópavogi. Þegar lögregla og viðbragðsaðilar komu á vettvang reyndist maðurinn, sem var um fertugt, látinn.

Óljóst hvað átti sér stað

Óljóst er enn hvaða atvik eða aðstæður liggja að baki andlátinu, en rannsókn málsins stendur yfir. Lögregla hefur tekið skýrslur og er frekari vinnu haldið áfram í dag. Enginn hefur verið handtekinn eða er í haldi vegna málsins á þessu stigi rannsóknarinnar.

Að sögn lögreglu eru ekki veittar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila