Lögreglan lýsir eftir Gunnari Svan Björgvinssyni

Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir Gunnari Svan Björgvinssyni.

Síðast sást til Gunnars þann 24. febrúar síðastliðinn við heimili hans á Eskifirði. Gunnar er um fertugt , 186 cm á hæð, grannvaxinn með áberandi sítt brúnt hár.

Þeir er vita um ferðir Gunnars eftir þennan tíma eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 0600 eða 444 0635 eða með tölvupósti á netfangið austurland@logreglan.is.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila