Macron boðar fjölgun kjarnorkuvopna

Emmanuel Macron Frakklandsforseti, tilkynnti í stefnuræðu á herstöð kjarnorkukafbáta landsins að Frakkland muni fjölga kjarnorkusprengjuoddum sínum í fyrsta sinn í áratugi. Hann sagði að til að vera frjáls þyrfti að vekja ótta og að Frakkland gengi nú inn í nýjan áfanga í fælingarstefnu sinni. Ræðan markaði uppfærslu á kjarnorkustefnu Frakklands og var sögð samræmast kjarnorkuverkefni Atlantshafsbandalagsins. Macron hvatti evrópsk ríki til að taka þátt í æfingum tengdum kjarnorkufælingu og lagði áherslu á að Evrópa þyrfti að hafa stjórn á eigin örlögum. Þetta kemur fram í frétt France24.

Eina kjarnorkuveldi Evrópusambandsins

Frakkland er eina kjarnorkuveldið innan Evrópusambandsins. Áherslan á herðingu fælingar kemur í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu og vaxandi óvissu meðal evrópskra leiðtoga um skuldbindingu Bandaríkjanna til að verja Evrópu undir eigin kjarnorkuhlíf. Macron sagði franska kjarnorkugetu vera í þjónustu friðar en undirstrikaði jafnframt að vopnabúr landsins væri það umfangsmikið að enginn andstæðingur gæti staðið óskaddaður eftir mögulega notkun þess.

Hann boðaði jafnframt leiðtogafund í París 10. mars til að efla þróun og notkun kjarnorku í borgaralegum tilgangi og sagði Frakkland vel í stakk búið til að leiða slíkt samstarf.

Sjálfstæð stjórn á vopnunum

Samkvæmt stjórnarskrá Frakklands er forsetinn æðsti yfirmaður hersins og einn um að taka ákvörðun um mögulega notkun kjarnorkuvopna. Þrátt fyrir aðild að Atlantshafsbandalaginu heldur Frakkland fullu sjálfstæði yfir kjarnorkuherafla sínum en leggur sitt af mörkum til sameiginlegrar fælingarstefnu bandalagsins. Frakkland og Bretland samþykktu í júlí sameiginlega yfirlýsingu um samhæfingu kjarnorkuafla sinna á sama tíma og hvorugt ríkið afsalar sér sjálfstæðri stjórn.

Franska flugmóðurskipið Charles de Gaulle, er eina yfirborðsherskip Evrópu sem getur borið kjarnorkuvopn með Rafale-orrustuþotum. Þá rekur Frakkland fjóra kjarnorkuvopnaða kafbáta sem hafa aðsetur á Île Longue við Atlantshafsströndina og hefur að minnsta kosti einn þeirra verið á stöðugri eftirlitsferð frá árinu 1972.

Fjórða stærsta kjarnorkuveldi heims

Samkvæmt nýjustu tölum Stockholm International Peace Research Institute og Federation of American Scientists á Frakkland um 290 kjarnorkusprengjuodda. Meira en 80% þeirra eru skotnir frá kafbátum. Það gerir Frakkland að 4 stærsta kjarnorkuveldi heims á eftir Rússlandi, Bandaríkjunum og Kína. Bretland er talið hafa um 225 sprengjuodda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila