Myndbanda- og samfélagsmiðillinn Rumble hefur hætt starfseminni í Frakklandi í kjölfar beiðni frá ríkisstjórn Emmanuel Macron, sem krefst ritskoðunar rússneska fréttamiðla á síðum Rumble. Forstjóri Rumble, Chris Pavlovski, skrifar:
„Rumble mun slökkva alveg á Frakklandi (Frakkland skiptir okkur ekki máli) og við munum mótmæla lögmæti þessarar kröfu.“
Loka fyrir Frakkland þar til Macron dregur ritskoðunarkröfuna til baka
Rumble var stofnað árið 2013 sem valkostur fyrir málfrelsið vegna sífellt meiri ritskoðunar tæknirisans YouTube. Rumble lýsir sér sem „ónæmu fyrir rétttrúnaðarmenningunni“ og segist vera með um 78 milljónir virkra meðlima.
Frönsk stjórnvöld krefjast þess, að Rumble ritskoði rússneskar fréttasíður í Frakklandi, skrifar forstjórinn Chris Pavlovski á Twitter (sjá neðar á síðunni). Russian Television RT og Sputnik eru bönnuð innan ESB vegna refsiaðgerða gegn Rússlandi en bannið er að einhverju leyti sniðgengið á samfélagsmiðlum. Rússnesku miðlarnir hafa einnig verið bannaðir í Bandaríkjunum og Kanada í lengri tíma og í mars var Elon Musk beðinn um að loka á rússneska fjölmiðla í gegnum netkerfi sitt Starlink, sem hann hafnaði, eins og forstjóri Rumble nefnir einnig í færslu sinni.
Pavlovski segir, að Rumble muni ekki fallast á beiðni Macron-stjórnarinnar heldur loka Rumble tímabundið í Frakklandi.
Jafnframt segir forstjórinn, að Rumble muni andmæla beiðni stjórnvalda vegna þess að það sé „hluti af verkefni Rumble að endurheimta frjálst og opið internet“ og að lokunin muni ekki hafa mikil áhrif á miðilinn, þar sem Frakkland sé aðeins um 1 % af notendum. Pavalovski skrifar á Twitter:
„Við vonum að franska ríkisstjórnin endurskoði ákvörðun sína svo við getum fljótlega opnað aðgang aftur að Rumble.“