Maíspá Guðrúnar: ESB-atkvæðagreiðsla fer ekki fram og ríkisstjórnin springur

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, heilara og miðil í síðdegisútvarpinu þar sem hún spáði í komandi atburði og meðal annars um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Guðrún sagði að hún teldi ólíklegt að þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram þar sem Alþingi myndi ekki ná að afgreiða málið innan tilsetts tíma eða einhver hindrun kæmi fram. Hún sagði jafnframt að skjöl og upplýsingar ættu eftir að koma fram sem myndu varpa nýju ljósi á samskipti íslenskra stjórnvalda og Evrópusambandsins og að stjórnarsamstarfið myndi ekki halda. Ingu Sæland formanni Flokks fólksins, yrði ofboðið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Telur að þjóðaratkvæðagreiðslan fari ekki fram

Í viðtalinu sagði Guðrún að hún hefði áður bent á að orðalag í undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslunnar yrði breytt og Arnþrúður rifjaði upp að breytingar hefðu þegar verið gerðar á framsetningu málsins. Guðrún sagði þó að það breytti ekki þeirri sýn hennar að atkvæðagreiðslan myndi ekki fara fram.

Að hennar mati væri staðan á Alþingi of óstöðug og átök innan stjórnarliðsins of mikil til að hægt yrði að ljúka málinu. Hún sagði að eitthvað ætti eftir að koma fram sem myndi tefja eða stöðva ferlið og um væri að ræða upplýsingar eða skjöl sem almenningur hefði ekki séð eða hefði vitneskju um.

Guðrún sagði jafnframt að jafnvel þótt kosning færi fram myndi þjóðin ekki samþykkja áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Leyniskjöl og pólitískar tengingar

Arnþrúður rifjaði upp tímabilið eftir bankahrunið þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar tók við völdum árið 2009. Í umræðunni komu fram vangaveltur um eldri samninga, skjöl og ákvarðanir sem teknar voru í tengslum við Evrópumál og efnahagsmál landsins á þeim tíma.

Guðrún sagði að hún teldi að gömul skjöl ættu eftir að koma fram sem tengdust loforðum eða skuldbindingum sem gerðar hefðu verið án þess að þjóðin hefði haft vitneskju um þær. Hún nefndi sérstaklega að hún tengdi málið við heimsókn Ursulu von der Leyen til Íslands og undir yfirborðinu væru upplýsingar sem ættu eftir að verða opinberar.

Þá sagði hún að umræðan tengdist einnig eldri ríkisstjórnum og nefndi bæði Katrínu Jakobsdóttur og Steingrím J. Sigfússon í því samhengi. Guðrún taldi að fortíðarmál ættu eftir að hafa áhrif á núverandi pólitíska stöðu og umræðu um Evrópumál.

Spáir stjórnarslitum og alþingiskosningum

Guðrún sagði að ríkisstjórnin ætti erfitt með að starfa saman og hún sæi merki um að samstarfið væri að nálgast endalok sín og líklega myndi samstarfinu ljúka þegar nær dregur hausti. Hún sagði að Inga Sæland ætti eftir að bregðast hart við stöðunni og hún myndi ekki sætta sig við framhaldið. Að hennar mati myndu bæði Inga Sæland og Kristrún Frostadóttir að lokum gefast upp á samstarfinu við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og stjórnarsamstarfið myndi þar með liðast í sundur.

Í umræðunni kom einnig fram að Guðrún teldi að alþingiskosningar gætu orðið næsta skref þegar nær drægi hausti. Hún sagði að pólitískt ástand væri orðið svo brothætt að erfitt yrði að halda stjórninni saman til lengdar.

Bankahrunið og fjármálahreyfingar aftur í umræðuna

Þá kom einnig fram í viðtalinu að Guðrún teldi að umræða um svokallaðan varagjaldeyrissjóð Íslands til Kaupþingsbanka á árinu 2008 og fjármagnshreyfingar í kringum bankahrunið gæti aftur komið upp í opinberri umræðu. Hún sagði að ýmis mál tengd hrunárunum væru ekki fullrakin og fleiri upplýsingar ættu eftir að koma fram og valda usla.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila