Matís fær 2,5 milljarða í styrki til rannsókna og nýsköpunar

Matís og samstarfsaðilar hafa tryggt sér styrki að andvirði 2,5 milljarða króna frá Horizon Europe, rammaáætlun Evrópusambandsins um rannsóknir og nýsköpun. Verkefnin snúa að aukinni sjálfbærni í fiskveiðum og fiskeldi, aðgerðum gegn umhverfisáhrifum og aðlögun að loftslagsbreytingum.Í tilkynningu MATÍS segir að þetta sé stór áfangi fyrir íslenska rannsóknarsamfélagið, enda mikil samkeppni um slíka styrki þar sem aðeins framúrskarandi verkefni fá fjármögnun.

Þrjú verkefni hljóta styrki

  1. MarineGuardian
    Verkefnið, sem hlaut 1,2 milljarða króna í styrk, einblínir á sjálfbærar fiskveiðar og verndun vistkerfa í Atlantshafi og Norðuríshafi. Markmið þess er að draga úr meðafla, brottkasti og áhrifum á botnvistkerfi, auka afla á sóknareiningu og tryggja betri gagnaöflun og úrvinnslu til sjálfbærniskýrslna. Matís leiðir verkefnið og starfar með íslenskum samstarfsaðilum eins og Trackwell, Brim, Hampiðjunni og Hafrannsóknastofnun. Verkefnisstjóri er Jónas R. Viðarsson.
  2. MeCCAM
    MeCCAM fékk styrk upp á 650 milljónir króna og miðar að því að þróa mótvægis- og aðlögunaraðgerðir fyrir sjávarútvegsfyrirtæki og hagaðila í Evrópu. Matís stýrir verkþætti í verkefninu og rannsóknum á Íslandi ásamt Trackwell, Brim og Stiku umhverfislausnum. Verkefnið er stýrt af SJÓKOVANUM í Færeyjum og tengiliður Matís er Katrín Hulda Gunnarsdóttir.
  3. OCCAM
    OCCAM, sem er systurverkefni MeCCAM, hlýtur einnig 650 milljóna króna styrk. Það styður fiskeldisiðnaðinn við mótvægis- og aðlögunaraðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Matís stýrir verkþætti verkefnisins sem er leitt af NOFIMA í Noregi. Samherji fiskeldi er meðal íslenskra þátttakenda og tengiliður Matís er Valur N. Gunnlaugsson.

Ætlað að stuðla að Framförum fyrir sjávarútveg og sjálfbærni

Styrkjunum er ætlað efla nýsköpun og sjálfbærni í íslenskum sjávarútvegi. Verkefnin leggja áherslu á að mæta vaxandi kröfum um umhverfisábyrgð og stuðla að því að atvinnugreinin verði betur í stakk búin til að takast á við loftslagsbreytingar. Með þessu viðurkennir Horizon Europe forystu Íslands á sviði rannsókna og nýsköpunar í sjávarútvegi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila