Menntamálaráðherrar Suður Kóreu og Íslands vilja hefja samstarf í menntamálum

Kim Sang-Kon, menntamálaráðherra og varaforsætisráðherra Suður-Kóreu, tók á móti Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í Seúl. Á fundinum var ákveðið að hefja samstarf á milli menntamálaráðuneytanna með það að leiðarljósi að efla menntun, rannsóknir og þróun. Nú þegar eru samningar á milli háskóla ríkjanna um skiptinám sem margir nemar hafa nýtt sér. Ráðherrarnir lýstu yfir vilja til að auka slíkt samstarf enn frekar.

Að auki auki ræddu ráðherrarnir þær áskoranir sem bæði ríkin standa frammi fyrir í menntamálum og framþróun á því sviði. Suður-Kóreska menntakerfið hefur komið vel út í alþjóðlegum samanburði.

Fram kom í máli menntamálaráðherra Suður-Kóreu að lykillinn að velgengni menntakerfisins væri góð umgjörð í kringum kennarastarfið en það nýtur mikillar virðingar. ,,Stjórnvöld leggja mikla áherslu á samkeppnishæft starfsumhverfi fyrir kennara. Að auki er mikil símenntun hjá kennurum sem tekur mið af þeim hröðu tæknibreytingum sem eru að eiga sér stað“, sagði Kim Sang-Kon.

,,Þetta var mjög gagnlegur fundur sem markar nýtt upphaf í samskiptum þjóðanna á sviði menntamála. Suður-Kórea hefur getið sér gott orð fyrir þróttmikið og öflugt menntakerfi. Kennarastarfið er í hávegum haft í Suður-Kóreu og færri komast að í kennaranámið en vilja. Það er mikilvægt að styrkja alla umgjörð í kringum kennarastarfið og fara í markvissar aðgerðir til takast á við þann mikla kennaraskort sem blasir við að öðru óbreyttu“, sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila