Mikil fjölgun umsókna í listkennsludeild Listaháskóla Íslands

Listaháskóli Íslands við Kirkjusand.

Fjöldi umsókna í listkennsludeild Listaháskóla Íslands hefur aukist um 122% frá síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mennta og menningarmálaráðuneytinu. Í tilkynningunni segir að aukninguna megi meðal annars rekja til þess að sett hafi verið upp ný námsleið við deildina fyrir nemendur sem hafa grunngráðu í öðru en listum en vilji bæta við sig meistaranámi í kennslufræðum. Markmiðið með nýju námsleiðinni er að byggja brú milli ólíkra greina og fagsviða og skila þannig fleiri vel menntuðum kennurum út í samfélagið sem geta verið forustuafl skapandi greina „Öflugt menntakerfi er forsenda framfara og það kerfi er borið uppi af kennurum sem með sínum störfum leggja grunn að annarri fagmennsku í samfélaginu. Til þess að mæta áskorunum framtíðarinnar þurfum við fjölhæfa og drífandi kennara og aukna áherslu á gagnrýna hugsun og sköpun í skólastarfi. Ég fagna mjög auknum áhuga á kennaranámi, og þeim nýju leiðum sem kennaramenntunarstofnanir eins og Listaháskólinn bjóða nú upp á. Við höfum kynnt fyrstu aðgerðirnar sem miða að því að fjölga kennurum, þeim hefur verið mjög vel tekið og ég er bjartsýn á árangur þeirra og það sem koma skal,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila