Mikil hætta á orkuskorti og hærra orkuverði ef þriðji orkupakki verður samþykktur

Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur.

Með samþykkt þriðja orkupakkans mun skapast hér á landi mikil hætta á orkuskorti og hækkun á orkuverði. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Bjarna Jónssonar rafmagnsverkfræðings í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Bjarni bendir á að Ísland uppfylli ekki þau skilyrði sem innri markaðsreglur ESB geri ráð fyrir að lönd uppfylli sem verði með í innleiðingu þriðja orkupakkans og þannig skapist mikið ójafnvægi á raforkumarkaði og valdi þannig sveiflum og hækkandi orkuverði. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.

 

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila