
Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), heimsótti í gær Ísland í sinni fyrstu vinnuheimsókn og átti fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann skoðaði einnig öryggissvæðið í Keflavík og fundaði með þingmönnum á Alþingi.
Hlutverk Íslands veigamikið í NATO samstarfinu
Mikilvægi Íslands fyrir öryggi og varnir Evrópu og Norður-Ameríku var á meðal helstu umræðuefna í heimsókninni og á fundum framkvæmdastjórans með forsætisráðherra og utanríkisráðherra var áréttað veigamikið hlutverk Íslands fyrir fælingar- og varnargetu bandalagsins.
„Ísland er í lykilstöðu fyrir Atlantshafsbandalagið á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og tengir Norður-Ameríku og Evrópu saman. Við rækjum þetta hlutverk okkar af mikilli festu og leggjum þunga áherslu á að vera áreiðanlegt og traust bandalagsríki,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
„Heimsókn framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins hingað til lands undirstrikar mikilvægi þessa hlutverks okkar. Ísland er herlaus þjóð en leggur um leið ríka áherslu á áframhaldandi uppbyggingu varnarinnviða hér heima, sem eru mikilvægur hlekkur í viðbúnaði bandalagsins. Framkvæmdastjórinn lýsti yfir ánægju sinni með það hvernig íslensk stjórnvöld væru að stíga upp og hrinda ákvörðunum leiðtogafundarins síðastliðið sumar í framkvæmd, sem taka mið af sérstöðu landsins innan bandalagsins,“ segir forsætisráðherra.
Ræddu mótun öryggis og varnarstefnu
Í heimsókn sinni á öryggissvæðið í Keflavík fundaði framkvæmdastjórinn með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og gafst þar færi að ræða uppbygginguna á öryggissvæðinu og vinnu íslenskra stjórnvalda við að móta varnar- og öryggisstefnu. Á fundinum var dregin upp skýr mynd af því hvernig Ísland er að auka eftirlit og viðbragðsgetu og styður við varnir í okkar heimshluta í samvinnu við önnur ríki með gistiríkjastuðningi, varnarinnviðum og rekstri loftvarnarkerfis.
,,Staða öryggismála í Evrópu hefur gjörbreyst vegna árásarstríðs Rússlands gegn Úkraínu og vaxandi fjölþáttaógna. Það kom skýrt fram á fundinum með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins að örlög Úkraínu varða öryggi allra bandalagsríkja, þar með talið Íslands. Við deilum líka þeirri sýn að virðing fyrir alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og fullveldi ríkja er grundvöllur friðar og öryggis á alþjóðavísu. Það hefur sjaldan eða aldrei verið mikilvægara að hlúa að Atlantshafstengslunum og Ísland mun leggja sitt af mörkum til að viðhalda samstöðu og slagkrafti bandalagsins með aukinni þátttöku og framlögum til sameiginlegra verkefna, og til stuðnings Úkraínu,“ sagði Þorgerður Katrín.
Áréttuðu stuðning við Úkraínu
Á sameiginlegum fundi ráðherranna með Rutte var einnig farið yfir stöðu mála í Úkraínu og að þær friðarumleitanir sem nú fara fram leggi grunn að réttlátum og langvarandi friði í Úkraínu. Á fundinum var stuðningur Íslands við Úkraínu áréttaður og þær áherslur sem ríkisstjórnin hefur sett í forgrunn varðandi áframhaldandi varnartengdan stuðning við landið, þ.m.t. PURL-frumkvæðið svokallaða, sem er forgangsmál Úkraínu og á vettvangi bandalagsins.
Auk funda með forsætisráðherra og utanríkisráðherra heimsótti Rutte Alþingi þar sem Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis tók á móti honum og átti framkvæmdastjórinn síðan fund með fulltrúum í utanríkismálanefnd og Íslandsdeild NATO-þingsins. Framkvæmdastjóranum var einnig boðið í stutta þyrluferð með Landhelgisgæslunni, þar sem hann fékk mikilvæga innsýn inn í baráttu Íslendinga við náttúruna og margvíslegar áskoranir sem henni fylgja.
