Mosfellingar ánægðir með Í túninu heima 2025

Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima, fór fram dagana 28. til 31. ágúst í glampandi veðri og fagnaði í ár 20 ára afmæli sínu. Alls voru um hundrað viðburðir á fjölbreyttri dagskrá og tók þátttaka íbúa og gesta mikinn kipp.

Könnun gerð meðal íbúa

Í kjölfar umræðu fyrir hátíðina um tilfærslu á staðsetningu og tímasetningu stórtónleikanna ákváðu bæjaryfirvöld að leita álits íbúa eftir hátíðina. Könnunin var öllum opin á vef Mosfellsbæjar, samfélagsmiðlum bæjarins, á Bólsins og í Mosfellingi. Alls bárust 566 svör.

Mikil ánægja með fjölbreytni og gæði

Samkvæmt niðurstöðum mátu 82% þátttakenda fjölbreytni og gæði dagskrár frekar eða mjög góða. Margir lýstu ánægju með andrúmsloftið og fannst vel hafa tekist til við að höfða til allra aldurshópa.

Stórtónleikarnir drógu að sér mesta athygli

Þegar spurt var hvaða viðburðir stæðu upp úr reyndust stórtónleikarnir vinsælastir og nefndu 58% svarenda þá sem hápunkt hátíðarinnar. Þá komu næst Ullarpartýið í Álafosskvos með 50%, fjölskylduvænir viðburðir með 45%, götugrillin með 42%, Gullgarðurinn við Hlégarð með 34% og tívolíið með 33%.

Götugrillin sköpuðu hverfisstemmingu

Götugrillin skipuðu stóran sess í upplifun íbúa; 56% þátttakenda tóku þátt í þeim. Margir voru ánægðir með að hafa nægan tíma til að njóta samverunnar án þess að þurfa að flýta sér á tónleika. Einnig var vel tekið í þá nýbreytni að bjóða upp á trúbadora og pylsur í boði Mosfellsbæjar í götugrillunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila