
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að hann muni hætta að styðja ríkisstjórnina ef Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra breyti ekki ákvörðun sinni um að þenja út friðlýsingarsvæði með friðlýsingu á Jökulsá á Fjöllum sem nær til alls vatnasviðs árinnar.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Jóns í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Jón segir að þó Guðmundur komi úr ranni Landverndar geti hann ekki farið með slíkum hætti
„ hann verður auðvitað að fara eftir þeim lögum sem gilda í landinu og við höfum fært fyrir því sterk rök að hann hafi ekki farið eftir þeim með þessari ákvörðun, hann er á öndverðri skoðun en ef hann breytir ekki þessari ákvörðun mun ég hætta að styðja ríkisstjórnina„,segir Jón.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan