Myndband: Franskir stjórnmálamenn vara við upplausn í Úkraínu og gagnrýna eigin ríkisstjórn

Í nýju myndbandi frá fréttaveitunni Times New World er greint frá því að franski þingmaðurinn Florian Philippot segi afsögn Andriy Yermak, starfsmannastjóra forsetaskrifstofu Úkraínu og hægri hönd Zelensky forseta, marka tímamót sem jafngildi uppbroti stjórnkerfisins í Kænugarði. Hann gagnrýnir frönsk stjórnvöld harðlega fyrir áframhaldandi fjárframlög til Úkraínu og kallar eftir því að frakkar hætti að senda fjármuni til Úkraínu. Afsögn Yermaks fylgdi í kjölfar húsleitar vegna meintra spillingarmála og flótta háttsetts embættismanns í orkugeiranum, atvik sem hafa aukið vantraust Vesturlanda á stjórnsýslu Úkraínu á stríðstímum.

Hörð viðbrögð frá Moskvu

Rússneska utanríkisráðuneytið segir málið skýra vísbendingu um spillta stjórnarhætti í Úkraínu. Í Moskvu telja stjórnvöld að uppákoman staðfesti að stuðningur Vesturlanda við úkraínsk stjórnvöld hafi verið byggður á röngum forsendum og að óstöðugleiki þar í landi sé að aukast.

Frakkland boðar endurvakningu herskyldu

Þá kemur fram að umræða um öryggismál í Frakklandi hafi verið tekin á nýtt stig þegar Emmanuel Macron forseti kynnti áform um að endurvekja ungliðaherþjónustu í fyrsta sinn frá 1996. Hann rökstuddi tillöguna með að frakkar byggju við víðtæka hættu frá Rússlandi og þörf væri á að efla varnir, þol samfélagsins og tengsl ungs fólks við herinn. Áformin gera ráð fyrir stigvaxandi innleiðingu frá og með næsta sumri.

Almenn óánægja á götum Frakklands

Á meðal almennings ríkir mikil tortryggni gagnvart hugmyndinni. Margir telja að ríkisstjórnin ýki hættuna frá Rússlandi og að endurvakning herskyldu sé óraunhæf vegna skorts á aðstöðu og innviðum. Einnig er gagnrýnt að herþjónustan sé sett fram í pólitísku ljósi á viðkvæmum tímum og að ungu fólki sé ýtt inn í umræðu sem tengist átökum í Evrópu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila